1471
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |
Árið 1471 (MCDLXXI í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Krossreið síðari. Bóndinn á Krossi í Austur-Landeyjum var myrtur.
- Sveinn spaki Pétursson Skálholtsbiskup veitti Þorleifi Björnssyni hirðstjóra og Ingunni Helgadóttur konu hans aflausn vegna sjö barneigna.
- Fyrsta Hansaskipið kom til Hafnarfjarðar.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- Jón Pálsson Maríuskáld (f. um 1390).
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]
- 17. janúar - Portúgalskir landkönnuðir uppgötvuðu eyjuna Prinsípe (Saó Tóme og Prinsípe).
- 24. febrúar - Stríð Đại Việt og Champa (í Víetnam nútímans). Đại Việt hafði sigur og voru tugþúsundir Champa teknir af lífi.
- 20. maí - Játvarður 4. varð konungur Englands eftir morðið á Hinriki 6.
- 25. ágúst - Sixtus IV var kjörinn páfi.
- 29. ágúst - Portúgalar hertóku Tangier í Marokkó.
- 2. október - Konungsríkið Pólland hóf stríð gegn Konungsríkinu Ungverjalandi og réðst inn í Bæheim.
- 10. október - Kristján 1. Danakonungur beið ósigur fyrir her Svía í orrustunni við Brunkeberg. Þar féll Árni sonur Björns Þorleifssonar hirðstjóra og Ólafar ríku.
Ódagsett
[breyta | breyta frumkóða]- Skotakonungur fékk Hjaltland og Orkneyjar frá Noregskonungi sem veð fyrir ógreiddum heimanmundi og lánum.
- Fyrsta þekkta skylmingahandbókin kom út á Spáni.
- Íbúafjöldi heims var um 500 milljónir.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- 21. maí - Albrecht Dürer, þýskur listmálari (d. 1528).
- 7. október - Friðrik 1. Danakonungur (d. 1533).
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- Maí - Hinrik 6. Englandskonungur myrtur í Tower of London (f. 1421).
- 26. júlí - Páll II páfi (f. 1418).