Fara í innihald

Barein

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Konungsríkið Barein
مملكة البحرين
Mamlakat al Bahrayn
Fáni Barein Skjaldarmerki Barein
Fáni Skjaldarmerki
Þjóðsöngur:
Baḥraynunā
Staðsetning Barein
Höfuðborg Manama
Opinbert tungumál arabíska
Stjórnarfar Konungsríki
Konungur Hamad bin Isa Al Khalifa
Krónprins Salman bin Hamad bin Isa Al Khalifa
Forsætisráðherra Salman bin Hamad bin Isa Al Khalifa
Sjálfstæði
 • frá Bretlandi15. ágúst 1971 
Flatarmál
 • Samtals
 • Vatn (%)
173. sæti
787 km²
0
Mannfjöldi
 • Samtals (2021)
 • Þéttleiki byggðar
149. sæti
1.463.265
1.864/km²
VLF (KMJ) áætl. 2026
 • Samtals118,060 millj. dala (98. sæti)
 • Á mann71.460 dalir (23. sæti)
VÞL (2023) Hækkun 0.899 (38. sæti)
Gjaldmiðill bareinskur dínar (BHD)
Tímabelti UTC+3
Þjóðarlén .bh
Landsnúmer +973

Barein (arabíska: البحرين‎ al-Baḥrayn), formlega Konungsríkið Barein (arabíska: مملكة البحرين‎ Mamlakat al-Baḥrayn), er eyríki í Persaflóa úti fyrir strönd Sádi-Arabíu í vestri og Katar í suðri. Barein er lítill eyjaklasi með 51 náttúrulegri og 33 manngerðum eyjum, þar sem stærsta eyjan, Barein, nær yfir 83% af landi ríkisins. Landið tengist Sádi-Arabíu með vegbrú, Fahd-vegtengingunni, og í bígerð er að byggja brú til Katar einnig. Meira en helmingur af 1,5 milljón íbúum landsins eru ekki bareinskir að uppruna. Landið er aðeins 780 ferkílómetrar að stærð og er því þriðja minnsta land Asíu, á eftir Maldíveyjum og Singapúr. Manama er bæði höfuðborg landsins og stærsta borgin.

Talið er að Barein hafi verið miðstöð Dilmunmenningarinnar í fornöld.[1] Síðar varð það hluti af ríkjum Parþa og Sassanída. Barein var lengi frægt fyrir perluveiði. Landið var eitt það fyrsta sem snerist til Íslam árið 628, þegar Múhameð spámaður var enn á lífi. Eftir að hafa verið undir arabískum yfirráðum um langt skeið lögðu Portúgalar það undir sig árið 1521 en þeir voru reknir burt af Abbas mikla sem lagði landið undir veldi Safavída árið 1602. Árið 1783 lagði Bani Utbah-ættbálkurinn eyjuna undir sig og síðan þá hefur Al Khalifa-fjölskyldan ríkt þar. Seint á 19. öld varð landið breskt verndarsvæði. Í kjölfar þess að Bretar drógu sig út úr heimshlutanum seint á 7. áratug 20. aldar lýsti Barein yfir sjálfstæði árið 1971. Landið var formlega lýst konungsríki árið 2002 en var áður emírsdæmi (furstadæmi).

Frá 2011 til 2013 stóð þar uppreisn meirihluta sjíamúslima gegn stjórninni sem hófst eftir Arabíska vorið.[2] Al Khalifa-fjölskyldan hefur verið sökuð um mannréttindabrot og ofbeldi gegn stjórnarandstæðingum. [3]

Barein var fyrsta landið Arabíumegin við Persaflóa þar sem olíulindir uppgötvuðust árið 1932.[4] Frá síðari hluta 20. aldar hefur efnahagur landsins byggst á fleiri þáttum, einkum banka- og ferðaþjónustu,[5] en eldsneytisútflutningur er enn helsti útflutningsvegur landsins og stendur undir 11% af vergri landsframleiðslu. Helstu vandamál landsins stafa af minnkandi olíu- og vatnsbirgðum og atvinnuleysi ungs fólks. Alþjóðabankinn skilgreinir Barein sem hátekjuland og það situr hátt á vísitölu um þróun lífsgæða. Barein er aðili að Sameinuðu þjóðunum, Samtökum hlutlausra ríkja, Arababandalaginu, Samtökum um íslamska samvinnu og Persaflóasamstarfsráðinu.

Orðið Barein er tvítala orðsins Bahr sem merkir „haf“, svo al-Bahrayn merkti upphaflega „höfin tvö“. Hins vegar hefur nafnið breyst í sérnafn í kvenkyni, og fylgir því ekki tvítölubeygingu og fær á sig endingar óbreytt, eins og í nafni þjóðsöngsins, Bahraynunā, eða þjóðarheitinu Bahraynī. Þetta kom fram hjá málfræðingnum al-Jawahari á 11. öld.[6]

Deilt er um hver séu höfin tvö sem nafnið vísar til. Nafnið kemur fimm sinnum fyrir í Kóraninum, en vísar þá ekki til eyjarinnar, sem upphaflega nefndist Awal á arabísku.[7] Í dag er yfirleitt lagður sá skilningur í nafnið að höfin tvö séu ýmist flóarnir sitt hvorum megin við eyjuna,[8] höfin norðan og sunnan við hana,[9] eða saltvatn og ferskvatn ofan og neðan jarðar, þar sem víða eru uppsprettur (líka í sjó) þar sem ferskvatn streymir upp á yfirborðið.[10]

Fram að síðmiðöldum átti heitið Bahrain við um hérað í Austur-Arabíu (Iqlīm al-Bahrayn) sem náði yfir, auk eyjunnar, núverandi suðurhluta Íraks, Kúveit, Al-Hasa og Qatif (í Sádi-Arabíu). Þetta svæði náði frá Basra að Óman í Hormússundi. Heitið átti þannig við um alla austurströnd Arabíuskagans í meira en þúsund ár.[11] Ekki er vitað nákvæmlega hvenær tekið var að nota orðið um eyjuna eingöngu.[12]

19. og 20. öld

[breyta | breyta frumkóða]

Snemma á 19. öld gerðu bæði Ómanar og Sádætt innrásir í Barein. Árið 1802 gerði ómanski soldáninn, Sayyid, 12 ára son sinn, Salim, að landstjóra í Arad-virki.[13] Árið 1816 fékk fulltrúi Breta í Persaflóa, William Bruce, bréf frá sjeik Barein sem hafði áhyggjur af orðrómi um stuðning Breta við innrás frá Múskat. Bruce fór til Barein þar sem hann fullvissaði sjeikinn um hlutleysi Breta og gerði við hann óformlegt vináttusamkomulag.[14]

Krýning Hamad bin Isa Al Khalifa sem hakím Barein í febrúar 1933.

Árið 1820 viðurkenndu Bretar Al Khalifa-ættina sem landstjóra (hakím) Barein eftir að þeir gerðust aðilar að Almenna hafsáttmálanum ásamt Sáttarstrandarríkjunum (nú Sameinuðu arabísku furstadæmin).[15] Tíu árum síðar neyddust þeir engu að síður til að greiða árlegan skatt til Egyptalands, þrátt fyrir að hafa leitað eftir vernd frá bæði Persíu og Bretlandi.[16]

Árið 1860 leitaði Al Khalifa-fjölskyldan á ný ásjár hjá bæði Persum og Tyrkjaveldi, þegar Bretar hugðust beygja landið undir sig. Að lokum náði Breska Indland samt yfirráðum yfir Barein þar sem Persar neituðu að koma þeim til varnar. Lewis Pelly ofursti undirritaði nýjan sáttmála þar sem Al Khalifa-fjölskyldan lagði Barein undir vernd og yfirráð Breta.[16]

Eftir stríð Katar og Barein 1868 gerðu fulltrúar Breta nýtt samkomulag við Al Khalifa-fjölskylduna. Þar kom fram að þau mættu ekki veita neitt af landi sínu til annarra aðila nema Breta og mættu ekki taka upp samband við erlendar ríkisstjórnir án samþykkis Breta.[17][18] Í staðinn lofuðu Bretar að verja Barein fyrir árásum af sjó og styðja landið ef til árása kæmi af landi.[18] Aðalatriðið var samt að Bretar lofuðu að styðja yfirráð Al Khalifa-fjölskyldunnar yfir Barein, sem styrkti hana í sessi. Aðrir samningar 1880 og 1892 staðfestu enn frekar stöðu Barein sem verndarríkis Breta.[18]

Órói hófst meðal íbúa Barein þegar Bretar tóku formlega yfir stjórn svæðisins 1892. Fyrsta uppreisnin og útbreidd uppþot gegn þáverandi sjeik, Issa bin Ali, áttu sér stað í mars 1895.[19] Issa var fyrsti ráðamaðurinn af Al Khalifa-ættinni sem ríkti án tengsla við Persíu. Fulltrúi Breta í Persaflóa, Arnold Wilson, kom til Barein frá Múskat á þessum tíma.[19] Uppreisnin hélt áfram og nokkrir mótmælendur voru drepnir af breskum hermönnum.[19]

Áður en olía fannst við Barein byggðist efnahagur eyjarinnar nær alfarið á perluveiðum sem fram á 19. öld voru taldar einhverjar þær fegurstu í heimi.[20] Árið 1903 kom þýski landkönnuðurinn Hermann Burchardt til Barein og tók margar ljósmyndir af sögulegum stöðum, þar á meðal höll sjeiksins Qaṣr es-Sheikh. Ljósmyndirnar eru varðveittar á Mannfræðisafninu í Berlín.[21] Fyrir fyrri heimsstyrjöld voru um 400 bátar á perluveiðum og árlegur útflutningur nam yfir 30.000 pundum.[22]

Árið 1911 krafðist hópur kaupmanna frá Barein takmarkana á áhrifum Breta í landinu. Leiðtogar hópsins voru í kjölfarið handteknir og sendir í útlegð til Indlands. Árið 1923 hófu Bretar stjórnarfarsumbætur í Barein og settu son Issa bin Ali til valda. Sumir andstæðingar Breta af klerkastétt og fjölskyldur, eins og Dawasir-ættbálkurinn, fluttu í kjölfarið til Damman hinum megin við flóann.[23] Þremur árum síðar settu Bretar landið undir de facto stjórn Charles Belgrave sem var formlega ráðgjafi landstjórans til 1957.[24][25] Belgrave stóð fyrir ýmsum umbótum eins og stækkun skólakerfisins og fór fyrir afnámi þrælahalds 1937 eftir þrýsting frá bresku ríkisstjórninni.[26] Á sama tíma tók perluiðnaðurinn stórstígum framförum. Árið 1927 krafðist Íranskeisari, Rezà Shàh, þess með bréfi til Þjóðabandalagsins að yfirráð hans yfir Barein væru viðurkennd. Belgrave brást við með því að fá sjeikinn til að breyta lögum sem heimiluðu fólki með írönsk vegabréf frjálsa för um Barein, þar sem það gæti bent til viðurkenningar á tilkalli Írans. Belgrave gekk jafnvel svo langt að stinga upp á að endurnefna Persaflóa „Arabíuflóa“, en breska stjórnin hafnaði því.[27][24] Áhugi Breta á þróun Barein stafaði af áhyggjum þeirra af auknum áhrifum Sáda og Írana í heimshlutanum.

Fyrsta olíulindin í Barein þar sem olíuvinnsla hófst 1932.

Olíufélag Barein (BAPCO), sem var dótturfélag bandaríska olíufélagsins Standard Oil Company,[28] hóf olíuvinnslu í Barein 1932.[29] Snemma á 4. áratugnum var Bareinflugvöllur reistur. Flugfélagið Imperial Airways flaug þangað, meðal annars með Handley Page HP42-tvíþekjum.

Barein var hluti af Bandamönnum í síðari heimsstyrjöld frá 10. september 1939. Þann 19. október 1940 vörpuðu fjórar ítalskar sprengjuflugvélar sprengjum á Barein og Dharan-olíuvinnslusvæðið í Sádi-Arabíu.[30] Þær réðust líka á olíuhreinsistöðvar Bandamanna.[31] Á hvorugum staðnum urðu miklar skemmdir, en atvikið varð til þess að Bandamenn neyddust til að styrkja varnir Barein.[31]

Eftir síðari heimsstyrjöld fór andstaða við yfirráð Breta vaxandi í öllum Arabaríkjunum og leiddi til mótmæla í Barein. Mótmælin bitnuðu einkum á Gyðingasamfélaginu þar.[32] Eftir óeirðir og rán 1948[33] flúðu flestir Gyðingar frá Barein til Bombay á Indlandi og síðar til Ísraels og Bretlands.[33] Á 6. áratugnum var stofnuð Þjóðarsamstöðunefnd í kjölfar átaka milli trúarhópa. Nefndin krafðist fulltrúaþings með kjörnum fulltrúum og afsagnar Belgraves. Í kjölfarið fylgdu mótmæli og verkföll. Árið 1965 brutust út mótmæli þegar hundruðum verkamanna olíufélagsins var sagt upp.[34]

Sjálfstæði

[breyta | breyta frumkóða]
Manama souq árið 1965.

Sameinuðu þjóðirnar stóðu fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Barein og lýstu því yfir að yfirgnæfandi meirihluti íbúa væri fylgjandi sjálfstæði. Íranskeisari lýsti því yfir að hann sætti sig við niðurstöðuna, þótt hann gæfi ekki formlega eftir tilkall Írans til Barein. Þann 15. ágúst 1971 lýsti landið yfir sjálfstæði og undirritað vináttusamning við Bretland.[35][36] Barein gerðist aðili að Sameinuðu þjóðunum og Arababandalaginu síðar sama ár.[37] Verðhækkanir á olíu á 8. áratugnum komu sér vel fyrir landið, en niðursveiflan í kjölfarið hafði neikvæð áhrif á efnahaginn. Þá hafði landið þegar tekið að auka fjölbreytni í hagkerfinu og tók við af Beirút sem fjármálamiðstöð Mið-Austurlanda þegar borgarastyrjöldin í Líbanon hófst.[38]

Eftir byltinguna í Íran 1979 gerðu sjíamúslimar í Barein misheppnaða valdaránstilraun undir forystu Íslamska framvarðarins fyrir frelsun Barein. Til stóð að koma sjíkaklerkinum Hadi al-Modarresi (sem var í útlegð í Íran) til valda og stofna klerkaveldi í Barein.[39] Í desember 1994 kastaði hópur ungmenna steinum í kvenkyns hlaupara í alþjóðlegu maraþonhlaupi í Barein, af því þær hlupu berleggjaðar. Í kjölfarið fylgdu átök við lögreglu sem breyttust í óeirðir.[40][41]

Sama ár hófst uppreisn vinstrimanna, frjálslyndra og bókstafstrúarmanna í Barein.[42] Um 40 létu lífið í uppreisninni sem lauk eftir að Hamad bin Isa Al Khalifa varð emír árið 1999.[43] Hann kom á þingkosningum og kosningarétti kvenna, og leysti pólitíska fanga úr haldi.[44] Í þjóðaratkvæðagreiðslu 14.-15. febrúar 2001 kom fram yfirgnæfandi stuðningur við Þjóðaraðgerðaskrá Barein sem átti að binda enda á uppreisnina.[45] Hluti af því var að Barein breytti formlegu heiti sínu úr Barein-„ríki“ (dawla) í Konungsríkið (mamlakat) Barein.[46] Um leið var titli þjóðhöfðingjans, Hamad bin Isa al-Khalifa, breytt úr emír í konung.[47]

Barein tók þátt í hernaðaraðgerðum gegn Talíbönum í október 2001 með því að senda freigátu til Arabíuhafs fyrir mannúðarstarf. Í nóvember það ár lýsti stjórn George W. Bush Bandaríkjaforseta Barein sem „mikilvægum bandamanni utan NATO“.[48] Barein var á móti innrás Bandaríkjanna í Írak 2003 og hafði boðið Saddam Hussein hæli dagana áður en innrásin hófst.[48] Samband við nágrannaríkið Katar batnaði eftir að deilur um yfirráð yfir Hawar-eyjum voru leystar fyrir Alþjóðadómstólnum í Hag árið 2001.[49] Í kjölfarið á stjórnmálaumbótum gerði Barein fríverslunarsamning við Bandaríkin 2004.[50] Árið 2005 var virkið Qal'at al-Bahrain skráð á heimsminjaskrá UNESCO.

Í kjölfar arabíska vorsins hófu sjíamúslimar í Barein umfangsmikil mótmæli gegn súnnískum ráðamönnum snemma árs 2011.[51][52] Í byrjun heimilaði ríkisstjórnin göngu til stuðnings mótmælendum sem létust í árás lögreglu á búðir þeirra við Perluhringtorgið.[53] Mánuði síðar óskaði stjórnin eftir aðstoð frá Sádi-Arabíu og öðrum aðildarríkjum Persaflóaráðsins, og lýsti yfir þriggja mánaða neyðarástandi.[54][55] Í kjölfarið hóf stjórnin aðgerðir gegn stjórnarandstöðunni sem fólust í handtöku þúsunda og kerfisbundnum pyntingum.[56] Nær dagleg átök milli mótmælenda og öryggissveita ollu tugum mannsláta.[57] Sum mótmælin voru skipulögð af flokkum í stjórnarandstöðu.[58] Yfir 80 almennir borgarar og 13 lögreglumenn höfðu látið lífið í mars 2014.[59] Samkvæmt bandarísku mannúðarsamtökunum Physicians for Human Rights tengdust 34 andlát notkun táragass frá bandaríska fyrirtækinu Federal Laboratories af hálfu stjórnarinnar.[60] Mótmælin í Barein fengu minni athygli í fjölmiðlum Persaflóaríkja en aðrar uppreisnir tengdar arabíska vorinu, sem hefur vakið deilur.[61]

Samkvæmt Amnesty International jókst kerfisbundin mismunun og kúgun gegn stjórnarandstæðingum, baráttufólki fyrir mannréttindum, klerkum og sjálfstæðum félagasamtökum, í kjölfar mótmælanna. Samtökin sögðu að stjórnin hefði í reynd lokað á tjáningarfrelsi og friðsamlegar baráttuaðgerðir.[62] Barein er áfram háð Sádi-Arabíu og Sameinuðu arabísku furstadæmunum hernaðarlega og fjárhagslega,[63] en áætlað er að það breytist með efnahagsumbótum stjórnarinnar.[64]

Í febrúar 2026 hófu Bandaríkin og Ísrael árásir á Íran og myrtu æðsta leiðtoga Írans, Ali Khamenei. Íran hefur brugðist við með drónaárásum gegn bandarískum herstöðvum og bandamönnum Bandaríkjamanna við Persaflóa. Þeirra á meðal er Barein þar sem mannfall hefur orðið.[65]

Landfræði

[breyta | breyta frumkóða]
Gervihnattamynd af Barein og austurströnd Sádi-Arabíu árið 2016.

Barein er flatlendur og þurr eyjaklasi í Persaflóa. Lág eyðimerkurslétta hækkar örlítið að lágum bakka í miðjunni þar sem hæsti punktur landsins er Reykfjall (Jabal ad Dukan) 134 metrar á hæð.[66] Barein var áður 665 ferkílómetrar að stærð, en vegna endurheimtar lands er það nú 780 ferkílómetrar.[67]

Barein er oft sagt vera eyjaklasi 33 eyja,[68] en vegna endurheimtar lands taldi það 84 eyjar árið 2008.[69] Barein á engin landamæri að öðru landi, en er með 161 km langa strandlengju og gerir tilkall til bæði 12 mílna landhelgi og 24 mílna aðliggjandi lögsögu. Stærstu eyjar eyjaklasans eru Bareineyja, Hawar-eyjar, Muharraq-eyja, Umm an Nasan og Sitra. Loftslag í Barein einkennist af mildum vetrum og heitum, rökum sumrum. Helstu náttúruauðlindir eru miklar olíulindir, jarðgaslindir og fiskimið undan ströndum landsins. Ræktarland er aðeins 2,82% af þurrlendinu.[70]

Stjórnmál

[breyta | breyta frumkóða]

Stjórnsýslueiningar

[breyta | breyta frumkóða]

Fyrsta sveitarfélagið í Barein var Manama sem var stofnað í júlí 1919.[71] Sveitarstjórnarmenn voru kosnir árlega. Sveitarfélagið var sagt vera það fyrsta í Arabaheiminum.[71] Sveitarfélagið bar ábyrgð á hreinsun gatna og leigu húsnæðis. Árið 1929 hóf það vegagerð auk þess að opna markaði og sláturhús.[71] Árið 1958 hóf sveitarfélagið hreinsun vatns.[71] Árið 1960 voru fjögur sveitarfélög í Barein: Manama, Hidd, Al Muharraq og Riffa.[72] Á næstu 30 árum var þessum 4 sveitarfélögum skipt í 12 sveitarfélög eftir því sem bæir eins og Hamad-bær og Isa-bær uxu.[72] Þessum sveitarfélögum var stýrt af sveitarstjórnarráði í Manama og fulltrúar þess voru skipaðir af konungi.[73]

Fyrstu sveitarstjórnarkosningarnar í Barein eftir að landið fékk sjálfstæði 1971, voru haldnar 2002.[74] Þær síðustu voru haldnar 2022.

Miðumdæmið var lagt niður í september 2014 og landsvæðinu skipt milli Norðurumdæmis, Suðurumdæmis og Höfuðborgarumdæmis.[75]

KortLandstjóraumdæmi
1 – Höfuðborgarumdæmi (Barein)
2 – Muharraq-umdæmi
3 – Norðurumdæmi (Barein)
4 – Suðurumdæmi (Barein)
Bareinbúar taka þátt í bænastund í Manama.

Árið 2010 voru íbúar Barein 1,2 milljónir. Þar af voru 568.399 ríkisborgarar og 666.172 utanaðkomandi.[76] Talan hafði þá hækkað úr 1,05 milljón (517.368 utanaðkomandi) árið 2007, þegar íbúafjöldinn fór í fyrsta sinn yfir milljón.[77] Flestir íbúar eru af miðausturlenskum uppruna, en stór hópur upprunninn frá Suður-Asíu býr í landinu. Árið 2008 voru þar um 290 þúsund indverskir ríkisborgarar, sem voru stærsti hópur innflytjenda í landinu, flestir frá Kerala.[78][79]

Barein er fjórða þéttbýlasta sjálfstæða ríki heims, með 1.646 íbúa á ferkílómetra árið 2010.[76] Einu ríkin sem eru þéttbýlli eru borgríki. Flestir íbúar hafast við í norðurhluta landsins.[76] Norðurhlutinn er svo þéttbýll að margir líta á hann sem eitt samfellt stórborgarsvæði.

Innfæddir Bareinbúar skiptast í stórum dráttum í tvo upprunahópa þar sem annar er arabískur og hinn persneskur. Hvor hópur um sig telur bæði súnníta og sjíta. Þannig eru súnnítar ýmist Arabar eða Huwalar (arabískir Íranar), og sjítar ýmist Bahamar (arabískir sjítar) eða Ajamar (frá Vestur-Íran).[80] Um helmingur múslima í Barein eru súnnítar og um helmingur sjítar. Önnur helstu trúarbrögð í Barein eru kristni, hindúasiður og búddatrú.[81]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. ↑ Oman: The Lost Land Geymt 6 október 2014 í Wayback Machine. Saudi Aramco World. Sótt 7. nóvember 2016.
  2. ↑ „Bahrain says ban on protests in response to rising violence“. CNN. 1. nóvember 2012. Sótt 16. nóvember 2012.
  3. ↑ „How Bahrain uses sport to whitewash a legacy of torture and human rights abuses | David Conn | Sport“. The Guardian. Sótt 19. júlí 2018.
  4. ↑ „Bahrain: Reform-Promise and Reality“ (PDF). J.E. Peterson. bls. 157.
  5. ↑ „Bahrain's economy praised for diversity and sustainability“. Bahrain Economic Development Board. Afrit af upprunalegu geymt þann 28. desember 2010. Sótt 24. júní 2012.
  6. ↑ „Bahrain Etymology, History, Geography, Government and politics, The Free Encyclopedia“. rsmag.org (bandarísk enska). Afritað af uppruna á 4. desember 2022. Sótt 21 apríl 2022.
  7. ↑ Houtsma, M. Th. (1960). „Baḥrayn“. Encyclopedia of Islam. I. bindi. Leiden: E.J. Brill. bls. 941.
  8. ↑ „Bahrain“. TeachMideast (bandarísk enska). Afrit af uppruna á 24 maí 2022. Sótt 21 apríl 2022.
  9. ↑ First encyclopaedia of Islam 1913–1936. E.J. Brill. 1993. bls. 584. ISBN 978-90-04-09796-4.
  10. ↑ „Bahrain Human Development Report 2018“ (PDF). Bahrain Human Development Report 2018. Afrit (PDF) af uppruna á 30 janúar 2022. Sótt 21 apríl 2022.
  11. ↑ Holes, Clive (2001). Dialect, Culture, and Society in Eastern Arabia: Glossary. BRILL. bls. XIX. ISBN 9004107630.
  12. ↑ Rentz, G. (2008). „al- Baḥrayn“. Í P. Bearman; Th. Bianquis; C.E. Bosworth; E. van Donzel; W.P. Heinrichs (ritstjórar). Encyclopaedia of Islam. Brill.
  13. ↑ Onley, James (2004). The Politics of Protection in the Persian Gulf: The Arab Rulers and the British Resident in the Nineteenth Century. Exeter University. bls. 44.
  14. ↑ Onley, James (2007). „Chapter 1, (2.7)“. The Arabian Frontier of the British Raj. Merchants, Rulers and British in the Nineteenth-Century Gulf. Oxford: Oxford University Press. ISBN 978-0-19-922810-2.
  15. ↑ Al-Baharna, Husain (1968). Legal Status of the Arabian Gulf States: A Study of Their Treaty Relations and Their International Problems. Manchester University Press. bls. 31. ISBN 0-7190-0332-6.
  16. 1 2 Smart, J. R.; Smith, G. Rex; Pridham, B. R. (2004). New Arabian Studies. University of Exeter Press. bls. 51, 52, 53, 67, 68. ISBN 978-0-85989-706-8.
  17. ↑ Pridham, B. R.; University of Exeter. Centre for Arab Gulf Studies (1985). The Arab Gulf and the West. Taylor & Francis. bls. 7. ISBN 978-0-7099-4011-1.
  18. 1 2 3 Wilson, Arnold T. (2011). The Persian Gulf: A historical sketch from the earliest times to the beginning of the twentieth century. Routledge. ISBN 978-1-136-84105-7.
  19. 1 2 3 Mojtahed-Zadeh 1999, bls. 130.
  20. ↑ EB (1878).
  21. ↑ „The old Qaṣr es-Sheikh“. Afrit af upprunalegu geymt þann 13 ágúst 2021.
  22. ↑ EB (1911).
  23. ↑ Kinninmont, Jane (28 febrúar 2011). „Bahrain's Re-Reform Movement“. Foreign Affairs. Afrit af uppruna á 5 janúar 2014. Sótt 7 júlí 2012.
  24. 1 2 Abedin, Mahan (9. desember 2004). „All at sea over 'the Gulf'“. Asia Times. Afritað af uppruna á 25 júní 2012. Sótt 7 júlí 2012.
  25. ↑ „Near & Middle East Titles: Bahrain Government Annual Reports 1924–1970“. Cambridge Archives Editions. Afrit af upprunalegu geymt þann 17 janúar 2013. Sótt 2 október 2012.
  26. ↑ „Treasure troves of history and diversity“. Gulf News. 25 janúar 2013. Afrit af upprunalegu geymt þann 27 nóvember 2014.
  27. ↑ Mueller, C. (2018). „The Persian Gulf, 1919–39: Changes, Challenges, and Transitions“. Journal of Arabian Studies. 8 (2): 259–274. doi:10.1080/21534764.2018.1551984.
  28. ↑ Yergin, Daniel (13 janúar 1991). „The Incessant Lure of Kuwait's Oil“. The New York Times. Afrit af uppruna á 14 maí 2013. Sótt 5 október 2012.
  29. ↑ Yergin, Daniel (1991). The Prize, The Epic Quest for Oil, Money & Power. New York: Touchstone. bls. 282–283. ISBN 978-0-671-79932-8.
  30. ↑ Mulligan, William E. (júlí–ágúst 1976). „Air Raid! A Sequel“. Saudi Aramco World. Afrit af upprunalegu geymt þann 29. september 2012. Sótt 2 október 2012.
  31. 1 2 Hamza, Abdul Aziz (2009). Tears on an Island: A History of Disasters in the Kingdom of Bahrain. Al Waad. bls. 165. ISBN 978-99901-92-22-3.
  32. ↑ Breger, Sarah (2011). „The Unlikely Emissary: Houda Nonoo“. Moment. Sótt 7 júlí 2012.[óvirkur tengill][óvirkur tengill]
  33. 1 2 Ratzlav-Katz, Nissan (14 ágúst 2008). „The King of Bahrain Wants the Jews Back“. Arutz Sheva. Afrit af uppruna á 3 október 2012. Sótt 2 október 2012.
  34. ↑ Curtis, Adam (11 maí 2012). „If you take my advice – I'd repress them“. BBC News. Afrit af uppruna á 8 október 2012. Sótt 27 júní 2012.
  35. ↑ nationsonline.org, klaus kästle -. „Bahrain – Kingdom of Bahrain – Country Profile – Al Bahrayn – Persian Gulf“. Afrit af uppruna á 3 júní 2023. Sótt 14 ágúst 2013.
  36. ↑ „Country independence dates“. didyouknow.org.[óvirkur tengill]
  37. ↑ The Middle East and North Africa 2004. Routledge. 2003. bls. 225. ISBN 1-85743-184-7.
  38. ↑ Amer Ziab Al-Tamimi (1. nóvember 2024). „How Lebanon's civil war helped Bahrain become a regional finance hub“. Al Majalla.
  39. ↑ Talbott, Strobe (25 október 1982). „Gulf States: Stay Just on the Horizon, Please“. Time. Afrit af upprunalegu geymt þann 3 október 2012. Sótt 2 október 2012.
  40. ↑ Darwish, Adel (1. mars 1999). „Bahrain remains stable despite arson attacks that took place in the country“. The Middle East.[óvirkur tengill][óvirkur tengill]
  41. ↑ „The Rich/Poor & Sunni/Shiite Rift“. APS Diplomat. 18. mars 2002. Afrit af upprunalegu geymt þann 17 janúar 2013. Sótt 5 október 2012 – gegnum HighBeam Research.
  42. ↑ Darwish, Adel (mars 1999). „Rebellion in Bahrain“. Middle East Review of International Affairs. 3 (1). Afrit af uppruna á 14 apríl 2012. Sótt 2 október 2012.
  43. ↑ Malik, Adnan (14. desember 2002). „Bahrain's monarch opens parliament after a span of nearly 30 years“. Associated Press. Afrit af upprunalegu geymt þann 4 október 2012 – gegnum HighBeam Research.
  44. ↑ „Bahrain: Promising human rights reform must continue“. Amnesty International. 13. mars 2001. Afrit af uppruna á 30. desember 2021. Sótt 9 febrúar 2011.
  45. ↑ „Country Theme: Elections: Bahrain“. UNDP-Programme on Governance in the Arab Region. 2011. Afrit af upprunalegu geymt þann 10 maí 2011. Sótt 9 febrúar 2011.
  46. ↑ „The Kingdom of Bahrain: The Constitutional Changes“. The Estimate: Political and Security Analysis of the Islamic World and its Neighbors. 22 febrúar 2002. Afrit af upprunalegu geymt þann 3 október 2009. Sótt 17 febrúar 2011.
  47. ↑ „Ruling Bahrain (Part I): The emir declares himself king“. 14. mars 2019. Afrit af uppruna á 5. september 2022. Sótt 2 október 2021.
  48. 1 2 The Middle East and North Africa 2004. Europa Publications. 2003. bls. 232. ISBN 1-85743-184-7.
  49. ↑ International Court of Justice. „Maritime Delimitation and Territorial Questions between Qatar and Bahrain (Qatar v. Bahrain)“. icj-cij. United Nations. Afrit af uppruna á 7 október 2023. Sótt 3 október 2023.
  50. ↑ „To Implement the United States-Bahrain Free Trade Agreement, and for Other Purposes“. White House Archives. Afrit af uppruna á 15 júlí 2012. Sótt 23 júní 2012.
  51. ↑ „Bahrain declares state of emergency after unrest“. Reuters. 15. mars 2011. Afrit af upprunalegu geymt þann 23 október 2012. Sótt 3 október 2012.
  52. ↑ „BICI | Bahrain Independent Commission of Inquiry“. bici.org.bh. 23 nóvember 2011. bls. 162–163. Afrit af uppruna á 9. desember 2017. Sótt 22 nóvember 2020.
  53. ↑ „BICI | Bahrain Independent Commission of Inquiry“. bici.org.bh. 23 nóvember 2011. bls. 73–74, 88. Afrit af uppruna á 9. desember 2017. Sótt 22 nóvember 2020.
  54. ↑ „Report of the Bahrain Independent Commission of Inquiry“. BICI. 23 nóvember 2011. bls. 132–139. Afrit af uppruna á 9. desember 2017. Sótt 29 janúar 2012.
  55. ↑ „Herlög gengin í gildi í Barein“. Vísir. 16. mars 2011.
  56. ↑ Bill Law (7. apríl 2011). „Police Brutality Turns Bahrain Into 'Island of Fear“. BBC News.
  57. ↑ Carlstrom, Gregg (23 apríl 2012). „Bahrain court delays ruling in activists case“. Afrit af upprunalegu geymt þann 15. september 2018.
  58. ↑ Solomon, Erika (11 júní 2011). „Thousands rally for reform in Bahrain“. Reuters. Afrit af uppruna á 22 október 2012.
  59. ↑ „Bomb blast kills three Bahrain policemen“. BBC. 3. mars 2014. Afrit af uppruna á 23. september 2018. Sótt 6. mars 2014.
  60. ↑ „Tear Gas or Lethal Gas? Bahrain's Death Toll Mounts to 34“. Physicians for Human Rights. 6. mars 2012. Afrit af uppruna á 13 janúar 2018. Sótt 12 janúar 2018.
  61. ↑ Hammond, Andrew (14 apríl 2011). „Gulf media find their red line in uprisings:Bahrain“. Reuters Africa. Afrit af uppruna á 14 janúar 2016. Sótt 26 apríl 2013.
  62. ↑ „Bahrain: Dreams of reform crushed 10 years after uprising“. Amnesty International. 11 febrúar 2021. Afrit af uppruna á 18 maí 2021. Sótt 1 maí 2022.
  63. ↑ „Ten years on, Bahrain paralysed by legacy of Arab Spring“. France 24. 12 febrúar 2021. Afrit af uppruna á 1 maí 2022. Sótt 2 maí 2022.
  64. ↑ „Bahrain News Agency“. bna.bh. Afrit af uppruna á 2. september 2019. Sótt 7. mars 2023.
  65. ↑ „Iran: Deadly drone strikes on Bahrain and Saudi Arabia may constitute war crimes – new research“. Amnesty International. 18. júní 2026.
  66. ↑ „Bahrain Geography and Population“. countrystudies.us. Afrit af uppruna á 23. september 2006. Sótt 29. júní 2012.
  67. ↑ „Bahrain“. Britannica Online Encyclopedia. Sótt 29. júní 2012.
  68. ↑ Kingdom of Bahrain National Report (PDF) (Report). International Hydrographic Organization. 2013. bls. 1. Afrit af upprunalegu (PDF) geymt þann 10. október 2017. Sótt 11. júní 2013.
  69. ↑ Abdulla, Mohammed Ahmed; Zain al-'Abdeen, Bashir (2009). تاريخ البحرين الحديث (1500–2002) [Modern History of Bahrain (1500–2002)]. Bahrain: Historical Studies Centre, Bareinháskóli. bls. 26, 29, 59. ISBN 978-99901-06-75-6.
  70. ↑ „CIA World Factbook, "Bahrain"“. Cia.gov. Afrit af uppruna á 29. desember 2010. Sótt 25. janúar 2011.
  71. 1 2 3 4 „History of Municipalities“. Ministry of Municipalities Affairs and Urban Planning – Kingdom of Bahrain. Afrit af upprunalegu geymt þann 13. desember 2012. Sótt 5. júlí 2012.
  72. 1 2 „Governorates of Bahrain“. Statoids. Sótt 5. júlí 2012.
  73. ↑ „Bahrain Government“. Permanent Mission of the Kingdom of Bahrain to the United Nations. Afrit af upprunalegu geymt þann 3. júní 2012. Sótt 5. júlí 2012.
  74. ↑ „Three Polls, Three Different Approaches“. The Estimate. 17. maí 2002. Afrit af uppruna á 17. janúar 2013. Sótt 5. júlí 2012.
  75. ↑ „Central Governorate dissolved“. Gulf Daily News. Afrit af upprunalegu geymt þann 10 október 2017. Sótt 27. desember 2020.
  76. 1 2 3 „General Tables“. Bahraini 2020. Afrit af upprunalegu geymt þann 20. mars 2012. Sótt 3. mars 2012.
  77. ↑ „Bahrain's population crossed 1 m in December“. Gulf News. 28 febrúar 2008. Afrit af uppruna á 12 ágúst 2012. Sótt 3 júní 2012.
  78. ↑ „290,000 Indians in Bahrain“. Gulf-daily-news.com. 5 júlí 2008. Afrit af uppruna á 27 apríl 2011. Sótt 27 júní 2010.
  79. ↑ „Indian Community“. Indian Embassy. Afrit af upprunalegu geymt þann 7. mars 2012. Sótt 6. mars 2012.
  80. ↑ „Bahrain's Rainbow Nation in Manama“. HotelTravel.com. Afrit af upprunalegu geymt þann 27 febrúar 2014. Sótt 20 febrúar 2014.
  81. ↑ Pew Research Center's Religion & Public Life Project: Bahrain Geymt 23 júlí 2019 í Wayback Machine. Pew Research Center. 2020.
  Þessi landafræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.